Skip to Content

Keppnin 2018-2019

Forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema fór fram um allt land þriðjudaginn 9. október 2018 og var öllum framhaldsskólanemum velkomin þátttaka. 212 kepptu á efra stigi og 129 á neðra stigi úr 20 skólum. Veitt voru viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur og fá handhafar viðurkenningarskjala jafnframt þátttökurétt í lokakeppni sem fram fer í byrjun mars 2019. Hlutföll milli efra og neðra stigs ráðast af því að nemendur á neðra stigi eru á fyrsta ári í framhaldsskóla og nemendur á efra stigi koma af bæði öðru og þriðja ári framhaldsskólans (fleirum boðið þaðan enda um stærri heildarhóp að ræða).

Keppendur í þremur efstu sætum á hvoru stigi hlutu að auki bók um stærðfræði að gjöf.

Efst á neðra stigi voru:

Sæti Nafn Skóli
1. Selma Rebekka Kattoll Menntaskólanum í Reykjavík
2. Kristófer Fannar Björnsson Verzlunarskóla Íslands
3. Hákon Jan Norðfjörð Menntaskólanum í Reykjavík
4. Jón Hákon Garðarsson Verzlunarskóla Íslands
5. Jónas Ingi Þórisson Verzlunarskóla Íslands
6.-7. Árni Pétur Árnason Menntaskólanum í Reykjavík
6.-7. Svanberg Addi Stefánsson Verzlunarskóla Íslands
8.-9. Sigurður Patrik Fjalarsson Menntaskólanum í Reykjavík
8.-9. Vigdís Selma Sverrisdóttir Menntaskólanum í Reykjavík
10.-11. Hekla María Bergmann Menntaskólanum í Reykjavík
10.-11. Ísak Bieltvedt Jónsson Menntaskólanum í Reykjavík
12. Gunnheiður Guðmundsdóttir Menntaskólanum að Laugarvatni
13.-14. Sindri Bernholt Menntaskólanum að Laugarvatni
13.-14. Bragi Þorvaldsson Menntaskólanum við Hamrahlíð
15. Arna Eiríksdóttir Verzlunarskóla Íslands
16.-18. Þórdís Elín Steinsdóttir Menntaskólanum í Reykjavík
16.-18. Arnar Ingason Menntaskólanum í Reykjavík
16.-18. Flosi Thomas Lyons Menntaskólanum við Hamrahlíð

Efst á efra stigi voru:

Sæti Nafn Skóli
1.-3. Árni Bjarnsteinsson Menntaskólanum í Reykjavík
1.-3. Hrólfur Eyjólfsson Menntaskólanum í Reykjavík
1.-3. Tómas Ingi Hrólfsson Menntaskólanum við Hamrahlíð
4. Eldar Máni Gíslason Menntaskólanum í Reykjavík
5. Andri Snær Axelsson Menntaskólanum í Reykjavík
6. Þorsteinn Freygarðsson Menntaskólanum í Reykjavík
7. Emil Fjóluson Thoroddsen Menntaskólanum við Hamrahlíð
8. Margrét Snorradóttir Menntaskólanum í Reykjavík
9. Guðmundur Freyr Ellertsson Menntaskólanum í Reykjavík
10.-11. Jón Haukur Sigurðarson Verzlunarskóla Íslands
10.-11. Vigdís Gunnarsdóttir Menntaskólanum í Reykjavík
12.-14. Bjarki Baldursson Harksen Menntaskólanum í Reykjavík
12.-14. Jón Gunnar Hannesson Menntaskólanum í Reykjavík
12.-14. Þorsteinn Ívar Albertsson Menntaskólanum í Reykjavík
15. Kári Rögnvaldsson Menntaskólanum í Reykjavík
16.-18. Bjarni Dagur Thor Kárason Menntaskólanum í Reykjavík
16.-18. Garpur Hnefill Emilíuson Menntaskólanum í Reykjavík
16.-18. Friðrik Valur Elíasson Menntaskólanum á Akureyri
19. Friðrik Snær Björnsson Menntaskólanum á Akureyri
20. Freyr Hlynsson Menntaskólanum í Reykjavík
21.-23. Arnar Ágúst Kristjánsson Menntaskólanum í Reykjavík
21.-23. Magni Steinn Þorbjörnsson Menntaskólanum á Akureyri
21.-23. Andri Þór Stefánsson Menntaskólanum á Akureyri
24.-25. Vilhjálmur Jónsson Menntaskólanum í Reykjavík
24.-25. Heiðar Snær Ásgeirsson Kvennaskólanum í Reykjavík
26.-28. Bjarki Sigurjónsson Verzlunarskóla Íslands
26.-28. Skjöldur Orri Eyjólfsson Menntaskólanum í Reykjavík
26.-28. Heimir Páll Ragnarsson Menntaskólanum við Hamrahlíð


Eystrasaltskeppnin

Lið Íslands í Eystrasaltskeppninni í St. Pétursborg í Rússlandi 3.-7. nóvember 2018 var skipað þeim Andra Snæ Axelssyni, Árna Bjarnsteinssyni, Hrólfi Eyjólfssyni, Tómasi Inga Hrólfssyni og Þorsteini Ívari Albertssyni. Liðstjórar voru Friðrik Diego og Sverrir Þorvaldsson.


Úrslitakeppnin

Úrslitakeppnin var haldin laugardaginn 2. mars 2019 í Háskólanum í Reykjavík en til þeirrar keppni er boðið efstu nemendum á efra og neðra stigi forkeppninnar.

Sæti Nafn Skóli
1. Tómas Ingi Hrólfsson MH
2. Hrólfur Eyjólfsson MR
3. Andri Snær Axelsson MR
4.-5. Árni Bjarnsteinsson MR
4.-5. Vigdís Gunnarsdóttir MR
6.-7. Þorsteinn Ívar Albertsson MR
6.-7. Friðrik Snær Björnsson MA
8.-9. Jón Gunnar Hannesson MR
8.-9. Arnar Ágúst Kristjánsson MR
10.-11. Margrét Snorradóttir MR
10.-11. Heiðar Snær Ásgeirsson Kvennó
12.-13. Skjöldur Orri Eyjólfsson MR
12.-13. Guðmundur Freyr Ellertsson MR
14. Andri Þór Stefánsson MA
15. Bjarki Baldursson Harksen MR
16. Magni Steinn Þorbjörnsson MA
17.-18. Friðrik Valur Elíasson MA
17.-18. Davíð Freyr Þorsteinsson Int.Sch.Brussels

Ofangreindur listi sýnir þau 18 efstu, sem er jafnframt boðið að taka þátt í Norrænu stærðfræðikeppninni þann 1. apríl 2019.

Norræna keppnin

Norræna keppnin var haldin 1. apríl 2019 og tóku keppendur þátt í sínum heimaskólum eða nágrannaskólum. Alls tóku 95 nemendur frá Norðurlöndunum þátt í keppninni að þessu sinni. Bestum árangri Íslendinga náði Andri Snær Axelsson í 10.-11. sæti með 18 stig.

IMO 2019

Ólympíuleikarnir í stærðfræði voru haldnir í Bath í Bretlandi dagana 11.-22. júlí 2019. Lið Íslands skipuðu þau Andri Snær Axelsson, Arnar Ágúst Kristjánsson, Árni Bjarnsteinsson, Friðrik Snær Björnsson, Tómas Ingi Hrólfsson og Vigdís Gunnarsdóttir. Hlutu Andri og Vigdís heiðursviðurkenningu fyrir fullt hús stiga við lausn á dæmi. Álfheiður Edda Sigurðardóttir fylgdi liðinu í norrænar æfingabúðir í Danmörku vikuna fyrir keppni og í Bath voru Marteinn Þór Harðarson dómnefndarfulltrúi fyrir Íslands hönd og Jóhanna Eggertsdóttir fararstjóri.

Það má líka finna okkur á Facebook.

ViðhengiStærð
Ns_forkeppni.pdf312.68 KB
Es_forkeppni.pdf286.22 KB
Lausn_Ns_fork.pdf290.21 KB
Lausn_Es_fork-A.pdf278.7 KB
lokakeppni2019.pdf69.59 KB
lokekeppni2019_lausnir.pdf151.35 KB