Tími: 
                    12. mars 2009 - 16:45         
         
 
    
            
                      
              Staðsetning: 
                    Stofu 155 í VR-II        
 
         
 
Fundurinn hefst með veitingum að hefðbundnum hætti frá kl. 16:45.
Að þeim loknum, eða klukkan 17:00, flytur Pawel Bartoszek erindi sem hann nefnir: Kosningakerfið með augum stærðfræðings.
Ágrip:  Að undanförnu hefur töluvert verið rætt um breytingar á kosningalögum og þá sérstaklega hugmyndir í átt til þess að auka persónukjör.  Farið verður í ólíkar aðferðir sem mögulegar eru í þessum efnum.  Að auki verður velt upp nokkrum öðrum útfærslum að kosningakerfum við kosningar til Alþingis, s.s. einmenningskjördæmum og þýska kerfinu og rætt um kosti þeirra og galla.