Skip to Content

Margföldun er reikniaðgerð á mengi rauntalna sem er táknuð með $\cdot$ (lesið: sinnum) og úthlutar sérhverjum rauntölum $x$ og $y$ rauntölunni $x \cdot y$ sem kallast margfeldi $x$ og $y$. Tölurnar $x$ og $y$ kallast þættir margfeldisins. Til að einfalda rithátt er margfeldi $n$ rauntalna $x_1 \cdot x_2 \cdot \ldots \cdot x_n$ oft ritað á forminu $\prod_{i=1}^n x_i$.

Margföldun rauntalna fullnægir eftirfarandi reiknireglum:

  • Hún er tengin, þ.e. fyrir öll $x,y,z \in \mathbb{R}$ gildir að \[ (x \cdot y) \cdot z = x \cdot (y \cdot z). \]
  • Hún er víxlin, þ.e. fyrir öll $x,y \in \mathbb{R}$ gildir að \[ x \cdot y = y \cdot x. \]
  • Talan $1$ er hlutleysa margföldunar, þ.e. fyrir öll $x \in \mathbb{R}$ gildir að \[ x \cdot 1 = x \quad \text{og} \quad 1 \cdot x = x. \] Af þessum sökum er $1$ kölluð einn eða margföldunarhlutleysa.
  • Sérhvert stak $x \in \mathbb{R}$ þannig að $x \neq 0$ á sér umhverfu með tilliti til margföldunar, þ.e. fyrir sérhvert $x \neq 0$ er til stak $y \in \mathbb{R}$ þannig að $x \cdot y = 1$. Þetta stak kallast margföldunarumhverfa $x$ og er yfirleitt táknað með $x^{-1}$ eða $1/x$.
  • Margföldun er dreifin yfir samlagningu, þ.e. fyrir öll $x,y,z \in \mathbb{R}$ gildir að \[ x \cdot (y + z) = x \cdot y + x \cdot z \quad \text{og} \quad (y + z) \cdot x = y \cdot x + z \cdot x. \]